Þarfir viðskiptavina
Okkur finnst mikilvægt að upplifun viðskiptavina af vörunni sé jákvæð, því viljum við veita stuðning við notkun hennar ef viðskiptavinur óskar þess. Á Facebook síðu Varðveislu verða leiðbeiningar um notkun ílátanna, þar er einnig hægt er að ná sambandi við okkur með skilaboðum ef einhverjar spurningar vakna, hlekkir hér til hægri á síðunni.
Vara ekki til á lager
Ef vara er ekki til á lager, má leggja inn pöntun með því að senda tölvupóst á: vardveisla@gmail.com, hringja eða senda skilaboð í síma: 8980345
Vöruafhending
Allar pantanir eru afgreiddar þegar greiðsla hefur borist.
Viðskiptavinur getur sótt vörurnar á vinnustofu í Súðarvogi 32, inngangur frá Kænuvogi, eftir samkomulagi, afgreiðsla getur tekið 1-3 virka daga.
Ef viðskiptavinur óskar eftir að fá vöruna senda í pósti greiðir hann burðargjald.
Varan fer þá í póst eftir 1-5 daga.
Greiðsluleiðir
- Millifærslur
Vöruskil og endurgreiðsla
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því gefnu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Ef skila á vöru vinsamlegast sendið vefpóst á: vardveisla@gmail.com eða hringið eða sendið skilaboð í síma: 8980345, áður en vöru er skilað. Kaupandi sendir okkur vöruna með pósti á eigin kostnað.