Smjörkrús
Smjörkrúsin er hönnuð til að varðveita smjör við stofuhita í eldhúsinu. Hún heldur smjörinu hæfilega mjúku svo gott er að smyrja með því.
Handgerðir hlutir
Allar vörur eru gerðar í höndunum og geta því verið lítillega breytilegar að lit og lögun. Glerjaðir hlutir eru glerjaðir í höndunum svo áferð glerungsins getur verið breytileg að litlu leyti sem gefur til kynna að hlutirnir eru gerðir af manna höndum. Þessi breytileiki er hluti af útliti og töfrum hlutarins.
Umhirða ílátsins
Þvoið krúsina með því að skrúbba hana vel með heitu vatni, ekki er nauðsynlegt að nota sápu. Hún þolir einnig uppþvottavél.
Nánari upplýsingar um vöru
Krúsin er framleitt úr steinleir. Hæð með loki: 9cm, þvermál: 12,5cm. Þyngd: 827g.
Notkunarleiðbeiningar
Krúsin er í tveimur hlutum, í innri hlutann er sett mjúkt smjör, fylla má upp að brún á krúsinni. Gott er að þjappa smjörinu svo ekki sé mikið loft inn á milli. Kalt vatn er sett í ytri hlutann, tæplega 1 cm borð. Þegar innri hlutanum er síðan hvolft ofan í ytri hlutann, fer hann aðeins ofan í vatnið og þannig myndast lofttæming svo smjörið er ekki í snertingu við andrúmsloft og geymist þannig mjög vel í stofuhita. Skipta þarf um vatn reglulega til að það haldist ferskt.
Afhending pöntunar
Pantanir er hægt að sækja í vinnustofu Varðveislu eða fá sent í pósti gegn burðargjaldi.
Vinnustofan er staðsett í SnúSnú keramik í Kænuvogi 32. Engir fastir opnunartímar en afhent samkvæmt samkomulagi.
Sími: 8980345, Email: vardveisla@gmail.com